109638756251144841

Lí­tið nýtt að frétta í­ verkfallinu. í morgun kom Finnbogi formaður og kynnti okkur stöðuna. Það virðist allt vera stál í­ stál og mann er farið að gruna að lausnin liggi hjá rí­kinu enda kennarar margbúnir að benda á að það fylgdi ekki nægjanlegt fjármagn með flutningi grunnskólana. Lúðví­k Geirsson virðist vera búinn að átta sig á þessu og fjallar um málið á vitrænum nótum. Svo er bara spurning hvort aðrir bæjarstjórar sem neita að borga kennurum yfirvinnu og hafa það að markmiði sí­nu að hleypa öllu í­ bál og brand séu tilbúnir að viðurkenna að þeir hafi gert mistök í­ samningunum um færslu grunnskólanna?

Eins og stendur er ég að lesa alveg stórkostlega bók eftir Bill Bryson sem heitir Down Under og er ferðabók um ístralí­u. Ég hef áður lesið bókina A Short History of Nearly Everything eftir sama höfund og hann er virkilega skemmtilegur.

í kvöld ætla ég svo að einhenda mér í­ að setja upp ársreikninga BKNE og reyna að koma þeim frá í­ nótt svo ég geti lagt þetta allt saman fyrir endurskoðendur félagsins kl. 13 á morgun en aðalfundurinn er á freysdaginn! Það verður talsvert afrek fyrir máladeildarstúdentinn sem hefur alltaf litið á bókhald eins og einhvers konar galdrabrögð og aldrei fattað hvernig þetta gengur allt upp.