Þá er kominn laugardagur og leiklistarhátíðin er að verða búin. Ein sýning á morgun og þá er öllu lokið. Við settum Taktu lagið Lóa upp tvisvar á fimmtudaginn og báðar sýningarnar tókust nokkuð vel. Við fengum líka ágætis gagnrýni, þ.e. við leikararnir en leikstjórinn var rakkaður niður að því er mér fannst að mörgu leiti …
Monthly Archives: júní 2005
111931888782301581
Ég er búinn að vera að lesa um formúlukeppnina á sunnudaginn út um allt á netinu. Þar skiptast menn í tvo hópa, þann sem sakar Ferrari og FIA fyrir ósveigjanleika og hinn sem sakar Michelin (og jafnvel Michelin-liðin sem mér finnst ómaklegt) fyrir að hafa ekki getað útbúið rétt dekk fyrir brautina og ekki einu …
111921346705824777
Formúlan í dag var mjög undarleg. Kynnafíflið var alveg brjálaður yfir að allir ökumenn á Michelin hættu keppni strax í upphitunarhring en Rúnari Jónssyni tókst að tala vit í hann meðan á keppninni stóð (heitir hann ekki annars örugglega Rúnar Jónsson?). Sjálfum finnst mér að allir sem þarna komu að máli hafi tekið rétta ákvörðun. …
111905394296883290
Ég átti afmæli í gær Ég átti afmæli í gær Ég átti afmæli sjálfur Ég átti afmæli í gær Kallinn bara orðinn 34 ára og satt best að segja þá finnst mér ég vera mun fullorðnari í dag en í fyrradag. Ég fékk bókina A Hat Full of Sky frá strákunum og Gullu. Sumarfríið gengur …
111879014315881466
Bjössi mágur og Anna Lára eignuðust dóttur kl. 15:30 í dag. Strákrnir eru voða spenntir að fá að sjá nýju frænkuna sína en viðgerðin á bílnum er svo dýr að við verðum að fresta suðurferð um sinn. Við ætlum náttúrulega á Duran Duran tónleikana 30. júní svo þeir verða að bíða þangað til þá.
111861651002989308
Þá er maður bara kominn í sumarfrí. Það er nú samt búið að vera nóg að gera. Fyrsti eiginlega frídagurinn var í dag. Fór með strákana í Sandvíkina og þar höfðum við það næs með tengdaforeldrunum, Jóa mág og kærustunni hans fram á kvöld. Náði samt að horfa á formúluna með Faxe Red mér í …
111817063156732238
Stórfrétt í fréttatímanum áðan að nýi páfinn hefur nákvæmlega sömu fordóma og sá gamli! Núna eru tveir dagar eftir af skólanum og ég er að velta því fyrir mér hvað ég eigi að gera af mér í sumarfríinu. Er að pæla í að útbúa eitthvað námsefni fyrir 7. bekkinn sem ég á að fara að …
111798879140638304
Það er víst Sjómannadagurinn í dag. Það rifjaðist upp fyrir mér þegar ég var á leið á Glerártorgið að kaupa plaststóla í skotið á bakvið hús. ístæðan var sú að mér varð á að kveikja á útvarpinu og heyrði þar einhvern framagosann mæra kvótakerfið í hástert. Man að það urðu einhverjar umræður einhversstaðar vegna einhvers …