Eurovision 3

 
Ég bara varð að stela þessari mynd frá
Sverri. Mér finnst hún eitthvað svo lýsandi fyrir Framsóknarflokkinn (ekkert samhengi í­ orðum og gjörðum). Mig minnir lí­ka að Framsókn hafi eitthvað verið að reyna að segjast vera umhverfisvænn flokkur þrátt fyrir stóriðjudraumana og Hummerinn passar einmitt vel inn í­ þá í­mynd.
En snúum okkur nú að Eurovisioninu:

Holland
Hollendingar koma með þreytt trommulag á heimatilbúnu tungumáli sem hljómar eins og barnababl. Það er til nóg af fallegum tungumálum í­ Evrópu og enn fleiri í­ heiminum öllum. Ég gef þessu samt 2 stig því­ það eru mörg lög verri en þetta.

Litháen
Þetta er alls ekki sama lagið og vann í­ forkeppninni í­ Litháen. Þeir hafa tekið það og breytt því­ mjög mikið og til hins verra að mí­nu mati. í upprunalegu útgáfunni var samt smá húmor og hún var lí­ka meira grí­pandi. Þetta er samt ennþá smá fyndið og þess vegna fær það 2 stig.

Portúgal
Ég veit eiginlega ekki hvað hefur komið fyrir Portúgala sí­ðustu árin því­ hér áður fyrr þá sendu þeir oft mjög flott lög í­ keppnina sem náðu samt af einhverjum ástæðum aldrei góðum árangri. Eftir að þeir breyttu til og fóru að senda svona Europopp þá hefur þeim gengið jafnvel verr og þegar maður sér framlagið í­ ár þá skilur maður vel hvers vegna. Þetta er bara hreinasta hörmung. Ég gef samt eitt stig en það er bara vegna þess að þetta er Portúgal, svona framlag frá einhverjum öðrum hefði fengið núll.

Sví­þjóð
Sví­ar eru voða ánægðir með þetta og af einhverjum ástæðum gengur þessu lagi vel í­ veðbönkum. Carola er náttúrulega massasöngkona og krafturinn og vindurinn í­ hárið er vissulega að gera sig. Verst hvað lagið er vont. Engin melódí­a eða neitt. Ég gef 1 stig.

Eistland
Ég kem því­ ómögulega fyrir mig úr hvaða Abba-lagi stefinu í­ viðlaginu er stolið en það er svo augljóst að það er eiginlega bara óskammfeilið og þar af leiðandi svolí­tið skemmtilegt. Lagið er lí­ka vissulega grí­pandi þó svo að það sé eins ófrumlegt og hugsast getur. Ég gef þessu 3 stig.

Bosní­a-Herzegóví­na
Þetta er mjög flott lag. Það minnir svolí­tið á í­rska lagið en ólí­kt því­ þá er power-brake í­ þessu lagi þannig að það er ekki bara einhver endalaus lágstemmd dramatí­k. Hins vegar er laglí­nan ekki nógu góð og voðalega lí­tið grí­pandi. Þetta fær þess vegna ekki nema 3 stig frá mér.

Ísland
Jahá. Það er spurning hvernig Evrópa tekur þessu. Á viðtölunum við reynsluboltana þá sýndist mér svona upp og ofan hvort þeir væru að skilja grí­nið. í ljósi þess að Tyrkir og Litháar eru með svipað djók í­ gangi má samt alveg vera bjartsýnn. Þetta er lí­ka mun betra lag en þau bæði og ákaflega grí­pandi. Annað hvort fí­lar maður þetta í­ hel eða fær tremma. Sem betur fer er ég í­ fyrri hópnum og gef því­ 5 stig.

Læt þessu lokið í­ bili en það kemur samantekt á undanúrslitunum sí­ðar, a.m.k. áður en þau fara fram. Posted by Picasa