Byrjunarvandræði

Þessi flutningur virðist ætla að ganga vonum framar. Mér tókst að setja Mikka inn á sí­ðuna, slatta af tenglum og er smám saman aðð læra á þetta kerfi. Mér sýnist það bjóða upp á að hafa myndir með færslum. Ég verð að læra á það næst. Ég er búinn að búa til einn nýjan efnisflokk og framvegis verða færslurnar því­ væntanlega efnisflokkaðar. Þeir flokkar verða samt bara til smám saman. Ég lenti í­ vandræðum með athugasemdirnar því­ ég virðist þurfa að samþykkja þær áður en þær birtast. Ég eyddi þeim hins vegar óvart og vona að enginn erfi það við mig svona meðan ég er að læra á þetta. Eina vandamálið sem ég sé núna er að Search möguleikinn hérna efst til hægri virðist ekki virka. Núna ætla ég að prófa að flokka þetta í­ annan flokk en almennt. Hins vegar verða allar eldri færslur þar áfram.