Ég var orðinn ansi hreint svartsýnn á að Michael Schumacher myndi vinna formúluna í ár. Ég hefði svo sem ekki erft það við hann þar sem hann er að hætta og allt það en mikið skelfilega getur maður nú samt orðið þreyttur á honum. Síðustu tvö ár hafa hins vegar verið feykilega skemmtileg í formúlunni. Sérstaklega miðað við 2004 sem Schumacher skemmdi gjörsamlega með þvílíkum yfirburðum að annað eins hefur varla sést. Eins og staðan er núna virðist fátt geta komið í veg fyrir að Alonso vinni annað árið í röð. Gott hjá honum. Það er samt óvarlegt að súpa kálið fyrr en í ausuna er komið og ekki ólíklegt í ljósi fyrri afreka Schumachers að hann reyni að keyra Alonso út úr keppninni. Það væri samt mjög áhættusamt þar sem Schumacher myndi þá hætta á að skemma sinn eigin bíl eða vera dæmdur úr keppni. Spurning hvort Ferrari láti ekki Massa bara um þetta skítverk? Þeim væri trúandi til þess í ljósi sögunnar. Mér þykir því líklegt að Fisichella verði látinn verja Alonso gegn mögulegri ákeyrslu Ferrari-manna. Það gæti þýtt ákaflega undarlega keppni í Brasilíu.
Næsta ár verður örugglega mjög skemmtilegt. Það verður gaman að sjá hvernig Raikkonen gengur hjá Ferrari og hvort Alonso geti keppt við hann á MacLaren. MacLaren-liðið virðist nefnilega alveg úti að aka þessa dagana. Einnig verður fróðlegt að fylgjast með því hvort Renault geti keppt við þessi lið eftir að Alonso hverfur á braut. Svo er aldrei að vita hvað hin liðin gera. Líklegust af þeim til að blanda sér í toppbaráttuna þykja mér BMW og Honda. Bæði lið hafa tekið stórum framförum og eru með góða ökumenn. Mér finnast Toyota-menn ekki jafn líklegir til afreka og það helgast líklegast af því að ég hef litla trú á Ralf og Trulli.