Ég kippi mér yfirleitt ekki upp við að að menn séu ekki sammála mér. Sérstaklega ekki ef þeir geta fært rök fyrir máli sínu og hafa einfaldlega aðra skoðun eða lífssýn en ég. Hins vegar þykir mér vont þegar menn eru ekki tilbúnir til að viðurkenna raunverulegar skoðanir sínar og fela sig á bak við tilbúnar réttlætingar. Verst þykir mér svo þegar réttlætingarnar eru tóm lygi og til þess gerðar að reyna að villa um fyrir fólki. Það getur beinlínis gert mig reiðan. ístæður þessara vangaveltna eru fréttir sem birtust í Morgunblaðinu s.l. fimmtudag. Þar sem ég er ekki ákrifandi hef ég ekki séð þennan lygavef fyrr en þess ber að geta að Mogginn er nú bara að birta lygaþvæluna í öðrum hér en ekki að ljúga sjálfur.
Óþurrkasumar? Hefði það ekki bara verið kallað votviðrasamt hérna í gamla daga?