Núna er ég búinn að starfa við Giljaskóla í þrjú ár og ég verð að viðurkenna að þó ég kunni flest nöfn annarra starfsmanna þar (nema kannski þeirra sem eru nýbyrjaðir) þá á ég í talsverðum erfiðleikum með að tengja mörg nöfn við andlit. Það er e.t.v. ekki skrýtið í ljósi þess að sumt fólkið þarna sé ég ekki nema á vikulegum kennarafundum og aðra (þá sem eru ekki kennarar og vinna ekki á unglingastiginu) sjaldnar. Mér finnst þess vegna alltaf jafn aðdáunarvert þegar fólk man eftir mér.
í dag rakst ég á fyrrverandi nemanda minn í Nettó, sá heilsaði mér með virktum (og nafni) en það eina sem ég mundi var að ég hafði kennt honum á Hvammstanga.
Þegar ég var að byrja í MR var Birgir írmannsson Inspector Scholae og ég man að ég var ekki búinn að vera í skólanum í marga daga þegar hann heilsaði mér með nafni og bauð mig velkominn. Innti eftir því hvernig mér fyndist skólinn og fleira í þeim dúr. í fyrstu var ég náttúrulega ákaflega upp með mér, 16 ára guttinn, að jafn mikils virtur maður innan skólans skyldi þekkja mig með nafni. Seinna komst ég að því að sem Inspector hafði Birgir skrifað undir nemendaskýrteini allra nýrra nemenda (sem voru með mynd) og það hafði dugað honum til að læra nöfnin á okkur öllum. Það eru einstakir hæfileikar sem ég á erfitt með að lýsa aðdáun minni nægjanlega á.
Sjálfur hef ég lent í því (sem unglingur) að kalla mönnum viðurnöfnum svo þeir heyrðu án þess að átta mig á því að í raun var um óvirðingu að ræða. Sem er leiðinlegt, sérstaklega í ljósi þess að báðir voru þessir strákar, sem ég uppnefndi þannig að þeim heyrandi, í miklum metum hjá mér. Aldrei hef ég heyrt samsvarandi um sjálfan mig. Sem þýðir annað hvort að flestir gæta sín betur en ég gerði eða að ég hef aldrei verið nógu sérstakur að verðskulda slíkt viðurnefni. Reyndar man ég að innan ræðuliðs MR var ég stundum kallaður kommin.