Þessi ummæli af Múrnum eru eins og töluð úr mínu hjarta: Nú eru vanhugsuð og heimskuleg ummæli presta ekkert nýmæli í íslenskri þjóðmálaumræðu.
Annar er það að frétta að ég var að klára seinna verkefni í 2. hluta mannauðsstjórnunarinnar, þ.e. þriðja verkefninu í þeim áfanga, þó ég þurfi líklega að stytta það um eina til tvær blaðsíður áður en ég skila því. Dagbókarskrifin ganga einnig vonum framar hjá mér. Þessu verður því hvoru tveggja skilað 15. desember. Á fimmtudaginn hitti ég tvo samnemendur mína í MPA náminu hér á Akureyri á smá fundi um stóra verkefnið í opinberu stjórnsýslunni og ég er ekki frá því nema það hafi opnast aðeins fyrir mér hvernig ég gæti tekið á því verkefni og hvaða lesefni væri hentugt fyrir mig að byggja á. Því verkefni á einnig að skila 15. des svo það er ekki seinna vænna en að hefja lesturinn strax … á morgun!