Nei, áttan og sviginn héldu sér og er það gott. Titill þessarar færslu vísar til fréttar sem ég heyrði í útvarpinu fyrr í kvöld. Þar var það haft eftir Landlækni að fagmenn ættu að sjá um heilbrigðisþjónustu en ekki trúfélög. Þessu get ég ekki annað en verið sammála. Á sama tíma og Landlæknir lætur hafa þetta eftir sér eru kennarar (sem stétt ekki einstaka kennarar) undarlega þögulir um að trúfélög séu að veita þjónustu innan grunnskólanna sem ætti að vera á höndum fagmanna.
Ég held það skipti nefnilega litlu máli hverrar trúar við erum eða erum ekki að það hljóta allir að sjá, þegar þeir hugsa út í það, að þjónustu sem krefst fagmenntunar beri að veita af fagmenntuðu fólki. Þetta á tildæmis við um sálfræðiþjónustu, félagsráðgjöf, úrlausn félagslegra vandamála, eineltismál, námsvandræði, hegðunarvandræði og annað sem kann að hrjá nemendur í grunnskólum landsins. Það er stórmerkilegt að þarna skuli vaða inn ákveðið trúfélag, með samþykki viðkomandi sveitarfélaga og skólastjóra, í stað þess að metnaður sé lagður í að byggja um faglega þjónustu. Þetta gerist án þess að Grunnskólakennarar mótmæli. Þarna er samt fólk með trúna eina í veganesti að sinna störfum sem sálfræðingar, félagsráðgjafar, námsráðgjafar, hjúkrunarfræðingar og síðast en ekki síst grunnskólakennarar hafa fengið menntun til að fást við. Það er ekki líklegt að vel blási fyrir stétt sem leyfir ófagmenntuðu fólki að taka yfir störf sín og þá sérstaklega ekki þann hluta þeirra sem mestrar fagmenntunar þarfnast.
Ætli við þurfum að setja á fót embætti Landkennara? (Nú eru 17 eftir)