Það fór eins og ég spáði fyrir í gær að Hjálmar rann niður listann með því að bjóða sig fram gegn Guðna. Fylgismenn Guðna sáu náttúrulega enga ástæðu til að merkja við Hjálmar í neðra sæti og því líklegt að atkvæðin sem hann hlaut í 1. – 3. hafi vel flest verið í 1. Það eru ekki mörg atkvæði í fyrsta sætið og mun færri en Hjálmar sagði að hefðu skorað á sig. Niðurstaðan varð sú að nýliðinn Bjarni náði að hreppa annað sætið sem hefði verið Hjálmars hefði hann boðið sig fram í það. Niðurstaðan er svo aftur á móti mun sterkari framboðslisti enda hljóta allir listar að styrkjast við það að Hjálmar írnason situr ekki á þeim. (7)