Nú hefur komið í ljós að Ingibjörg og Össur voru líka að ljúga þegar þau sögðu að vaxtahækkunin væri ekki hluti af samkomulaginu við IMF. Ég ítreka bara það sem ég sagði í síðustu færslu: Allt þetta lið verður að víkja!
En hvers á maður að gjalda sem kjósandi þegar eini flokkurinn sem styður aðildarumsókn að ESB grípur til lygiblekkinga af þessu tagi? Ætli þau hafi lært þetta af Sjöllunum?
Ég óska eftir nýju framboði frjálslynds jafnaðarfólks af skandinavísku tagi með ESB sem aðalstefnumál. Ég myndi kjósa það framboð ef tryggt væri að innanborðs væru engir sem setið hafa í ríkisstjórn s.l. 17 ár.