Þá er búið að samþykkja á Alþingi að sækja um aðild að ESB og senda inn umsókn. Það er vel. Ég hef verið á þeirri skoðun að líklega sé betra fyrir okkur (flest) að vera innan ESB en utan og þ.a.l. líklega betra fyrir þjóðina í heild (þó eflaust sé það verra fyrir einhverja). Mér hefur alltaf sviðið undan því að þeir sem hafa þessa sömu skoðun og ég séu kallaðir landráðamenn eða föðurlandssvikarar og líka það að við séum sökuð um að líta á ESB sem einhverja töfraskyndilausn. Það er ESB ekki. Ég áskil mér rétt til að hafna samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslu ef mér líst ekki á hann en þykir líklegra að hann verði viðunandi. Ég hef verið á þeirri skoðun að það sé út í hött að greiða atkvæði um aðild að ESB nema vita fyrst hvað það þýðir, þ.e. að aðildarsamningur verði að liggja fyrir svo hægt sé að taka afstöðu. Það var meðal annars þess vegna sem ég kaus Borgarahreyfinguna í síðustu kosningum. Það olli mér því verulegum vonbrigðum þegar þrír þingmanna hennar fóru í skollaleik með atkvæðin sín í þessu máli, studdu tvöfalda atkvæðagreiðslu sem var andstæð því sem a.m.k. tveir þessara þingmanna höfðu sagt fyrir kosningar og kusu svo gegn aðildarumsókninni þvert á fyrri yfirlýsingar. Það gerðu þeir vegna áhyggja af Icesave. Ég skil vel þær áhyggjur en tel að þarna hafi þeir gert það sem þeir gagnrýndu aðra stjórnmálamenn hvað mest fyrir áður, þ.e. að nota atkvæði sín í einstökum málum sem skiptimynt fyrir stuðning annars staðar burt séð frá eigin skoðunum eða sannfæringu.
Hvað Icesave varðar hef ég verið á þeirri skoðun að báðir möguleikarnir í stöðunni séu slæmir. Af tvennu illu sé þó líklegra illskárra að samþykkja samninginn en ekki. Síðan hafa borist ýmsar fréttir um yfirhilmingar, galla á ákvæðum um endurskoðun, misvísandi útreikninga á greiðslugetu o.s.frv. Staðan í dag er því sú að ég hef ekki hugmynd um hvort betra sé að samþykkja samninginn eða ekki. A.m.k. er ljóst að stórhættulegt væri að samþykkja hann án fullnægjandi fyrirvara. Ef niðustaðan verður sú að samningurinn verður samþykktur, með eða án fyrirvara, má ljóst vera að hann verður að endurskoða eftir 7 ár þegar fara á að greiða af honum. Þá held ég að samningsstaða okkar verði betri og sterkari ef við verðum innan ESB frekar en utan og ekki síður ef okkur hefur þá tekist að taka upp Evru. Síðast en ekki síst verður samningsstaða okkar betri ef okkur tekst á þessum 7 árum að koma höndum yfir allar eigur svokallðra útrásarvíkinga og dæma þeim hæfilega refsingu. Eins og staðan er núna er maður hræddur um að það muni ekki gerast og þeir haldi áfram sínum vafasömu viðskiptum, jafnvel í bönkunum sjálfum á nýjan leik. Fari svo mun það hafa mun meiri og verri áhrif á trúverðugleika okkar og traust en að hafna Icesave samningnum.