Núna eftir að ég kom af leikstjórnarnámskeiðinu er hópur fólks úr Freyvangsleikhúsinu byrjað að undirbúa verkefni haustsins. Síðasta haust lögðum við af stað í fyrsta skipti með svo kallað haustverkefni og settum þá upp Memento Mori. Núna ætlum við að fara aðra leið og semja verk sjálf. Það er því búið að setja saman dálítinn höfundakjarna sem vinnur að því hörðum höndum þessa dagana að berja saman leikverk sem sett verður á svið í haust. Um þetta skal ekki látið meira uppi að sinni, annað en það að verkefnið gengur undir heitinu: Bannað börnum.