Jæja, Þá er það ákveðið. Ég ætla að hætta í vinnunni! Veit ekki hvort það verður um áramótin eða í vor en ég held ég geti ekki beðið lengur en það. Það er ekki bjóðandi hugsandi fólki að vera grunnskólakennarar.
Aftur eru jólin að byrja alltof snemma. Það kvarta allir og kveina yfir Þessu en samt breytist þetta aldrei. Færist bara framar ef eitthvað er. Eiginlega orðinn hluti af jólastemmingunni að kvarta svolítið yfir þessu jólastressi í nóvember.
Rifjaðist upp fyrir mér um daginn þegar Halldór ísgrímsson tók Hringadróttinssögu líkinguna sína fyrir kosningar og klúðraði fræðunum svo gjörsamlega að ljóst var að hann hafði aldrei lesið þessa bók. Greip bara titilinn Turnarnir tveir og sneri því upp á Samfylkingu og Sjálfstæðisflokk. Sjálfur tók hann sér hlutverk Fróða. Hann áleit augsýnilega að turnarnir væru ísarngerði og Mordor, hvort tveggja tákngerfing hins illa. Turnarnir voru hins vegar annars vegar Minas Tirith, höfuðborg Gondor og útvörður frjálsra manna gegn ofurveldi Mordors og hins vegar Minas Morgul, höfuðvígi hringvomanna sem gengu erinda Saurons hins illa. Það er spurning um það hver gangi þeirra erinda í Íslenskri pólítík. Helst dettur manni í hug ríkisstjórnin og hundsháttur þeirra gagnvart stríðsrekstri Bandaríkjanna. Það þýðir að stjórnarandstaðan er Minas Tirith en mér finnst það heldur mikið lagt á mjóar herðar. Sé að minnsta kosti engan þar sem er nokkur Gandalfur. Kannski er Stebbi Páls Fróði? Hann hefur a.m.k. krullurnar!
Þetta fór ég sem sagt að rifja upp meðan ég var að lesa nýju Harry Potter bókina fyrir strákana. Það var eitthvað við Voldemort sem minnti mig svo sterkt á Sjálfstæðisflokkinn og Lucius Malfoy bara hlýtur þá að vera Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Galdramálaráðuneytið er líka dæmigerður Framsóknarflokkur og Cornelius Fudge er mun líkari Halldóri ísgrímssyni en Fróði nokkurn tímann. Þarna reyndar endaði þessi samlíking því eins og áður var erfitt að finna stjórnarandstöðuna þarna. Er Hogwart Samfylkingin og Fönixreglan Vinstri-Grænir? Eða er Fönixreglan Samfylkingin og Harry, Ron og Hermoine Vinstri-Grænir? Steingrímur, Ögmundur og Katrín! Eða eru þau kannski Frjálslyndir? Er Hermoine Granger Ingibjörg Sverris? A.m.k. er Lúna Lovegood örugglega Kolbrún Halldórs.
Veit einhver um vinnu fyrir háskólamenntaðan, harðduglegan og hugmyndaríkan mann á Akureyri?