Fréttablaðið kom inn um lúguna hjá mér í morgun í fyrsta sinn frá því á Sunnudaginn. Ég hringdi líka í þá í gær og kvartaði. Ég held að það hafi nú samt aðallega verið út af því að blaðið var búið í Bónus.
í gær fór ég líka í sund og tók mig til og synti mér til heilsubótar. Mér til skelfingar komst ég hins vegar að því að ég er aumingi. Eftir tíu ferðir (250 metra) var ég orðinn dauðuppgefinn og gafst upp. Ég hefði nú líklega samt getað synt tvær til fjórar ferðir í viðbót ef líf mitt hefði legið við. í ljósi þessa ætla ég aftur í sund á eftir og synda a.m.k. tíu ferðir. Svo fjölgar þeim vonandi í framtíðinni. Mig minnir að meðan ég bjó á Hvammstanga hafi ég stundum synt 40 ferðir (1 km!) og verið minna lúinn á eftir en ég var í gær. Gangi mér vel!