Nei, ég er ekki hættur að blogga. Það er hins vegar búið að vera alveg brjálað að gera hjá mér. Ég var einstæður faðir þessa vikuna því Gulla fór til London um helgina og kom ekki aftur fyrr en í gær. Þrátt fyrir það hef ég ekki verið heima nema eitt kvöld í þessari viku og þakka fyrir að Dagur er orðinn nógu stór til að passa bróður sinn. Það eru sem sagt búin að vera fundarhöld, kennsla, fundarhöld, vinna við fréttabréf, leikæfingar, fundarhöld og spilakvöld. Loksins þegar ég fann svo tíma til að blogga smá þá var eitthvað bilerí hjá Blogger og ekkert hægt að gera.
Svo er ég að fara í Húsafell um helgina að hitta gamla félaga og kem ekki aftur fyrr en á sunnudag. Á mánadag er svo náttúrulega vinna og síðan ætlar BKNE að halda kosningavöku um kvöldið. Að vísu gerum við ráð fyrir að úrslit liggi fyrir og ég býst við því að kennarar felli tillöguna. Þetta er meira svona afsökun fyrir því að hittast, borða pizzur og kíkja í bjór.
Hins vegar þykist ég hafa heimildir fyrir því að Samband íslenskra sveitarfélaga ætli líka að fella miðlunartillöguna, þó svo ég skilji ekki alveg tilganginn í því hjá þeim. Þeim finnst það kannski líta vel út pólitískt? Sjáum til hvort þessar heimildir mínar standist.
A.m.k. þykist ég sjá fram á bloggþurrð hér á síðunni fram á týsdag. Gangi ykkur vel að þrauka án mín!