Það er liðin rúmlega vika síðan ég bloggaði síðast. Ég veit ekki alveg hverju er um að kenna en vissulega hefur verið mikið að gera. Pabbi og mamma komu um síðustu helgi og fóru að sjá Lóu litlu. Ég held þau hafi fengið góða sýningu. Dagur og tengdó fóru líka.
Á sunnudaginn fór ég svo suður á þing Kí sem var á mána- og týsdag. Það var svo sem allt í lagi. Betri stjórn á hlutunum og svona en á aðalfundinum hjá Félagi grunnskólakennara. Það sem bar helst til fregna var að Þorgerður Katrín þorði ekki að mæta til að flytja ávarp og samþykt var ályktun þar sem skorað var á menntamálaráðherra að draga til baka ákvörðun um styttingu náms til stúdentsprófs.
Ég kom svo heim aftur á óðinsdaginn og þá var búið að fresta fundi með nýrri stjórn Kennarafélags Akureyrar sem á að reyna að knýja Kristján Þór bæjarstjóra til að standa við stóru orðin um að hann vilji borga okkur 300 þúsund í mánaðarlaun fyrir 8 – 17 vinnu. Svo var fótbolti um kvöldið og gekk bara ágætlega. Heitur pottur á eftir og voða næs.
Síðustu þrjá daga hafa svo verið þemadagar í skólanum. Við erum alltaf með stuttmyndadaga á unglingastiginu og í dag var sýningin og verðlaunaafhending. Stytt útgáfa af Rocky sópaði til sín verðlaunum, m.a. fyrir bestu klippingu, leikstjórn, handrit og aðalleikara í karlhlutverki. Það var samt önnur mynd sem var valin besta myndin en það munaði mjóu.
Núna er ég að fara bráðlega út í Freyvang til að leika í sýningu kvöldsins. Ef þið eigið leið um Eyjafjörð um páskana mæli ég með að skella sér á Taktu lagið Lóa.
Smá plögg svona í endann.