Það er ekki hægt að kvarta undan gúrkutíð þessa dagana. Öryrkjar auglýsa í Fréttablaðinu dag eftir dag og reyna að höfða til samvisku þingmanna. í dag voru það Framsóknarmenn en samviska þeirra hefur löngum þótt torfundin. Það er líka fjallað ítarlega um dóminn yfir löggunum tveimur og haft eftir öðrum lögreglumönnum að þessi dómur geri þeim erfiðara fyrir í sínum störfum. Þeir muni eftir þetta varla þora að taka á afbrotamönnum eða fyllibyttum. Þetta er líklega bara angi af því sem hefur gerst í skólunum fyrir nokkru síðan að ekki er lengur hægt að gera neitt varðandi vandræðagemlinga og hávaðaseggi. Byrjar sakleysislega og að því er flestum finnst verið að koma í veg fyrir óþarfa valdbeitingu (ekki líkamlega í skólunum) en svo vindur þetta upp á sig og fyrr en varir eru menn farnir að leiða vandræðin hjá sér frekar en að lenda í einhverjum „málum“ sjálfir.
Annars er líka athyglisverð frétt í Fréttablaðinu um geðsjúkan mann sem á að bera út úr íbúðinni sinni. Þessi mál eru orðin svo tíð að þau eru að verða hversdagsleg. Stundum er kvartað undan ofríki og ofbeldi geðsjúkra sem hvergi fá aðhlynningu og þurfa oft að setjast upp á ættingja og jafnvel kúga þá árum saman vegna sjúkdóms síns. Svo þegar mælirinn er fullur og það á að bera þá út þá er farið að kvarta undan því að það eigi að bera sjúklinga út á gaddinn. Bíddu?! Eru menn fyrst núna að fatta að geðveiki er sjúkdómur? Þetta er enn eitt dæmið um að það verður að gæta svo réttinda sumra að hinir þurfa að líða fyrir (ættingjar og nágrannar). Dettur engum í hug að réttur þessara sjúklinga sé sá að fá aðstoð, aðstöðu og aðhlynningu áður en sjúkdómur þeirra veldur öllum í kringum þá verulegri vanlíðan? Ég held að það sé fyrst og fremst vandamálið í dag og þangað til því er kippt í liðin er kjánalegt að fyllast hneykslan ef geðsjúkir eru bornir út úr íbúðum sínum eða ef þeir fá að vera þar og eru ógnun við aðra íbúa. Hneykslunin hlýtur að vera yfir því að ekkert sé hægt að gera fyrir þessa sjúklinga fyrr en þeir fremja einhver voðaverk í veikindum sínum og eru sendir inn á Sogn.
Á sígarettupökkum stendur: „Reykingar eru stórhættulegar fyrir þig og þína nánustu.“ Fyrir mig og mína nánustu? Þetta finnst mér nákvæmni með eindæmum. Er þá ekkert hættulegt fyrir Geirmund Guðjónsson að reykja þar sem ég þekki hann ekki neitt?
BíBB. Nei, BBíB.