Mikið leiðast mér rangar fréttir. Sérstaklega fréttir sem hefði verið svo auðvelt að hafa réttar ef menn hefðu fyrir því að ræða við þá er málið varðar. Þannig er það með fréttina um lífeyrissjóðsskuldbindingar Ríkisins vegna LSR. Þar var því slegið upp að hver íslendingur á almennum vinnumarkaði skuldaði ríkisstarfsmönnum 2 milljónir svo ríkið gæti staðið undir lífeyrisgreiðslum og að þennan pening ætti að sækja með aukinni gjaldheimtu, stöðugt ykjust lífeyrisskuldbindingarnar og með áframhaldandi þróun ef ekkert yrði að gert myndi þetta kosta mörg hundruð milljarða.
í þessu er svo margt rangt að maður veit varla hvar á að byrja! Fyrir utan það að líklega hefði ekki þurft nema eitt stutt símtal við LSR til að fá réttar upplýsingar í stað þess að treysta á upphrópanir einhvers hagfræðings úti í bæ sem virðist annað hvort illa upplýstur eða vísvittandi að villa um fyrir fólki í pólitískum tilgangi.
í fyrsta lagi. Ef þetta væri skuldin og ríkið þyrfti að ná þessum peningum með auknum sköttum myndu þeir skattar að sjálfssögðu leggjast alveg eins þungt á ríkisstarfsmenn eins og fólk á almenna vinnumarkaðinum.
í öðru lagi þá var LSR jafngreiðslusjóður sem þýðir að hann hefði farið á hausinn um leið og hann þurfti að borga meira út en kom inn í hann. Þ.e. um leið og iðgjöld nægðu ekki fyrir lífeyrisgreiðslum og þegar dró úr fólksfjölgun var það óumflýjanlegt. Þessu fyrirkomulagi var breytt og nú er LSR rekinn í tveimur deildum B deildin er gamli jafngreiðslusjóðurinn og það er vegna hans sem þessar skuldbindingar eru. Sá hluti sjóðsins er lokaður og í hann bætast ekki fleiri félagar. Þ.e. B hlutin deyr með sínum síðasta félaga og þá er þetta vandamál úr sögunni. Það heldur því ekki áfram að vaxa um ókomin ár. A hlutinn er söfnunarsjóður þar sem hver félagsmaður hefur sín réttindi og hans innleg fer í að borga lífeyrinn hans síðar. Vegna þessa hluta sem verður eini hlutinn í framtíðinni þarf því ekki að axla þessar skuldbindingar.
Þannig að: Lífeyrisskuldbindingarnar aukast því aðeins þangað til síðasti félaginn í B hluta LSR lætur af störfum, það á ekki að innheimta 2 milljónir í sköttum af hverjum og einum sem vinnur á almennum markaði og það er fyrir löngu síðan búið að grípa til þeirra aðgerða sem þurfti til að leysa vandamálið. Ætli þetta hafi verið ekki frétt gærdagsins?