Ég er svo yfir mig! íðan þar sem ég var í mestu makindum að vinna í fartölvunni minni (ókey skólans) þá tilkynnti hún mér allt í einu að batteríið væri að verða búið og mér væri nær að fara að vista það sem ég var að gera og slökkva eða tengja tölvuna við rafmagn. Þetta kom mér illilega á óvart þar sem ég taldi mig hafa stungið tölvunni í samband áður en ég hófst handa.
Þegar ég skoðaði svo snúruna tók ég eftir að á hana var komið gat þar sem sást í víra og gerði ég því ráð fyrir að þar væri ástæðan komin fyrir því af hverju tölvan fékk ekkert rafmagn úr veggnum.
Á þessu eru tvær líklegar útskýringar: Annað hvort hefur snúran legið upp að ofninum, sem var funheitur sökum mikilla vetrarkulda hér á Akureyri síðustu daga, eða að kötturinn, sá minni og vitlausari, hefur bitið hana í sundur. Ég sé hins vegar engin önnur bitför á snúrunni svo líklega er þetta ofninum að kenna. Þó þykir mér undarlegt að rafmagnssnúra þoli ekki að liggja upp að ofni þó heitur sé.
Nú er bara spurning hvort tæknisvanurinn uppi í skóla geti reddað mér nýrri snúru á morgun því annars er tölvan ónothæf, þar sem batteríið er nánast upp urið eins og áður sagði.
Mér skilst að mér hafi eitthvað misfarist í talningunni. Hildigunnur benti mér á að ég hefði númerað tvær færslur sex, þannig að færsla fimm átti að vera fjögur og síðustu færslu (3) gleymdi ég að númera, en þessi færsla er þá a.m.k. nr. 2 (athugið að hér er talið niður).