Ætti það kannski að vera Evrusýn?
Þá er undankeppnin búin og Eiríkur vann. Ég taldi hann alltaf vera með sigurstranglegasta lagið, e.t.v. ekki það besta, en það sem virkar best við fyrstu hlustun. Hins vegar komu lögin sem lentu í 2. og 3. sæti mér á óvart. Ég hefði talið Heilinn minn með Heiðu og Blómabörn með Bríeti Sunnu líklegri til að lenda í þeim sætum.
Ég sagði hérna um daginn að mér hefðu fundist undankeppnirnar leiðinlegar í ár. Þess vegna kom það mér á óvart hvað mér fannst úrslitakeppnin hljóma vel. Af þeim lögum sem ég er ekki þegar búinn að minnast á hafði ég mest gaman af Aftur og var það þá sérstaklega frábær coreografering sem heillaði mig.
Nú vona ég bara að Eiríkur slái í gegn í Helsinki og þá má gjarnan setja jafnvel meiri kraft í flutninginn fyrir keppnina sjálfa. En hver fer þá í skemmtilega Eurovisionþáttinn fyrir Íslands hönd? Hvaða Eurovision-fan á Íslandi talar reiprennandi skandinavísku og verður okkur ekki til skammar? Það er spurning hvernig Helga er orðin í dönskunni? Annars myndi ég svo sem ekki skorast undan ábyrgð ef til mín yrði leitað. 😉