Annað hvort er að Alþingi Íslendinga er búið að setja lög sem banna einkadans eða þá að slík lög eru í deiglunni. Nú er ég ekki sérstakur talsmaður einkadans per se, og hitt er líka vitað að stöðum þar sem boðið er upp á slíkan dans, sem og strípidans hvers konar sem þó ekki er einka, fylgja sögusagnir um vændi, mansal og dópsölu. Tvennt það síðarnefnda er ólöglegt. Ég er hins vegar efins um að það að ráðast gegn einkadansi og/eða strípiklúbbum hafi mikið að segja í baráttunni gegn vændi, mansali og dópi. Þessi lög held ég að spretti frekar af siðvendni, eða vilja til að líta út fyrir að vera siðvandur, frekar en að menn hafi hugsað málið til enda og minnir þannig frekar á áfengisbannið á síðustu öld heldur en skynsamlegar aðgerðir gegn glæpsamlegu athæfi. Ég hef áður gripið til þeirrar líkingar að það dettur engum í hug að banna íþróttafatnað þó svo að vitað sé að hluti hans er framleiddur með barnaþrælkun í Austurlöndum. Ég held að við verðum bara að bíta í það súra epli að það eru ekki allir skinheilagir og það sem Bubba Morthens þykir gott og gilt getur Hauki frænda þótt helst til vilt. Það er ekki þannig að þá sé bara best að banna það. Reyndar efast ég um að þetta bann standist fullkomlega nútíma hugmyndir um frelsi. Hér væri hægt að telja upp atvinnufrelsi, persónufrelsi, tjáningarfrelsi o.s.frv. en um leið og við lítum á um hvað er að ræða, þ.e. dans sem fram fer þar sem einungis tveir eru til staðar, dansarinn og áhorfandinn, sem hefur borgað fyrir að sjá dansinn, hvort sem um er að ræða nektardans eða annan dans, þá verður hugmyndin um að banna hann einhvern veginn fáránleg. Hvað ef tveir kaupa dans? Er þetta bundið við dans þar sem dansarinn fer úr fötunum? Hljómar allt saman hálf kjánalega. Sjálfur er ég frekar fylgjandi því að ráðast gegn mansali heldur en fyrirbærum sem um ganga sögur að séu einkenni þess.
Og fyrst ég er byrjaður að vera svona upp á móti þá er best að hætta þessu röfli og fara að sparka í hund (óviðeigandi grín en ég ræð bara ekki við mig). Merkilegt að fólk getur æst sig upp í móðursýki yfir þessum hundi (já,já, ég veit þetta var ógeðslegt) en ypptir ekki öxlum yfir barnamorðum ísraela í Palestínu (Darfúr, Kasmír o.s.frv.).