Þá er maður búinn að hlusta á viðtalið hjá Stormsker við Guðna. Þetta hefði maður aldrei hlustað á nema vegna þess hve mikið er búið að tala um útgöngu Guðna. Ég efast um að nokkur maður hefði heyrt Guðna gera sig að fífli í þessum þætti nema vegna þess að hann gekk út. Reyndar var vitleysisgangurinn í kringum landbúnaðinn að mestu búinn þegar Guðni fór.
Sverrir Stormsker er náttúrulega eins og Sverrir Stormsker er og ég viðurkenni að ég hef svolítið gaman af því en Guðni hefur augljóslega ekki vitað út í hvað hann var að fara. Hvar er hann búinn að vera síðustu þrjátíu ár? Já, alveg rétt í fortíðinni. Sverrir var hins vegar rökfastur í spurningum sínum og vitleysan öll Guðna megin og ljóst að honum þótti mjög óþægilegt að svara þeim. Svaraði reyndar ekki heldur endurtók í sífellu eins og einhverja möntru: Íslenska lambið er gott. Íslenskur landbúnaður er góður og undarlegt hvað Sverrir leyfði honum mikið að tala út og suður eins og Guðna (og Ólafi F.) einum er lagið.
Sverrir: Fyrst íslenska lambakjötið er svona æðislegt af hverju getur það ekki keppt við erlent kjöt á markaði?
Guðni: Íslendingar eru stoltir af sínum landbúnaði.
Sverrir: Já, örugglega og ef þeim finnst íslenska rollan svona mikið betri og útlenskar skjátur fullar af viðbjóðslegum sýkingum þá kaupa þeir þær bara ekki, ekki satt?
Guðni: Nýsjálendingar hafa tekið fyrir allan innfluttning á landbúnaðarvörum. Hvað næst? Ryksuga?
Maðurinn er augljóslega gersamlega búinn að tapa því. Svo þegar Sverri leiddist þófið og fór að knýja harðar á um svör sagði Guðni bara að hann tæki ekki þátt í svona kjánaskap sem einkenndist af þekkingarleysi og hann væri bara farinn. Fór hins vegar ekki fyrr en seint og um síðir þegar Sverrir fór að spyrja hann um einhverja belju.
Það fór reyndar mjög í taugarnar á mér hvað Sverrir þrástagaðist á þessari belju. Hefur maðurinn aldrei heyrt talað um kýr? Guðni tók það hins vegar skýrt fram að hann hefði búið á Selfossi frá 14 ára aldri og þar væri ekki hægt að stunda neinn búskap og hann væri þ.a.l. ekki sveitarmaður heldur borgarbarn!