Ég rakst á alveg dásamlega samlíkingu á netinu áðan (athugasemd 4). Þegar ég hugsaði málið nánar þá sá ég að tærari sannleika hef ég ekki lesið í háa herrans tíð. Framsóknarmenn eru svolítið eins og ísbirnir á Íslandi. Það þykir fréttnæmt þegar þeir sjást og það er mikið fjallað um þá en í hinu stóra samhengi hlutanna skipta þeir engu máli og eru það fáir að margir vilja friða þá en affarasælast er nú samt að losa sig við þá því þeir geta verið stórhættulegir ef þeim er ögrað eða hleypt í gjöful varpsvæði. Þeir sem sagt líta út fyrir að vera krúttlegir bangsar en eru í raun stórhættuleg rándýr.
Síðan eru líka til úthverfapólitíkusar sem sjá ekkert athugavert við að rífa gömul timburhús og byggja risastóra steinsteypukubba í staðinn og hafa það sem sitt helsta afrek í skipulagsmálum að hafa látið leggja nýju Hringbrautina. Það er spurning hvorir séu hættulegri Reykvíkingum.