Jæja, svo Helgi kallinn Hóseasson er bara enn á lífi! Það eru gleðilegar fréttir. Til að halda upp á það og votta honum virðingu mína er ég að hugsa um að útbúa mér svona skilti með einhverri góðri áletrun og fara og standa hérna niðri á Hlíðarbraut í nokkurn tíma. Látið mig vita ef ykkur detta í hug einhverjar góðar áletranir. Ég vil helst koma Krosslafi, blæti og R.í.Ó. fyrir á skiltinu. Ég er líka kominn með svo fínt skegg sem ég er búinn að vera að safna fyrir Ronju Ræningjadóttur að ég er farinn að líkjast Helga dálítið. Báðir eigum við líka við þann djöful að draga að bera nöfn sem tengjast kristinni trú. Þess vegna vil ég helst alltaf koma síðara nafninu mínu, Freyr, að með hinu svona til að vega upp á móti því. Ég held ég kynni mig alltaf sem Daníel Frey en ekki bara Daníel.
Leiklistarvalið í skólanum hittist líka í fyrsta sinn í dag og krakkarnir voru mjög spenntir og áhugasamir og fannst leikritið sem ég fann handa þeim mjög skemmtilegt. það heitir: Hótel útiljós og fjallar um fyrsta kvöldið eftir opnun mjög sérkennilegs hótels á landsbyggðinni. Við ætlum að staðfæra það aðeins (Kannski gera hótelið að skíðahóteli uppi í Hlíðarfjalli?) og seta það upp á árshátíðum skólans. Já það verða þrjár. Ein fyrir hvert aldursstig vegna þess að salurinn hér í skólanum er svo lítill. Þá dettur mér í hug hvort það væri ekki hægt að leigja almennilegt stórt húsnæði með alvöru sviði og gera þetta almennilega. Líklega er það full dýrt. Mikið eiga minni staðir gott með að hafa aðgang að félagsheimilum. Ég man hvað þetta var flott bæði á Hvammstanga og í Ólafsvík. -Andvarp- Mikið vildi ég að vitleysingunum í Húnaþingi-vestra hefði ekki dottið í hug að flytja hálfan skólann út í sveit. Þá væri ég líklega þar ennþá. Helv…. ígúst!
Ég er orðinn svolítið svag fyrir Grenivík. ílíka stór staður og Hvammstangi og mjög huggulegur bær. Ég er orðinn svo mikill dreifbýlisplebbi að líklega enda ég síðhærður í lopapeysu með hávísindalegan, jarðvegsfirrtan sjálfsþurftarbúskap og sem ljóð í bændablöð víða um land:
Dreifbýlispleppi og pönkarafrík,
postuli í Lopapeysu.
Dreymir um ræktun og rómantík
en röflar svo bara vitleysu.
Hending í fyrstu ljóðlínunni er reyndar stolin úr Frank Zappa eftir Guðmund Steingrímsson en það er bara allt í lagi. Svo ég vitni í Terry Pratchett: „Þeir sem stela eru bara þjófar“ úr Feet of Clay.