Ég bý á Akureyri. Ég keyri stundum yfir Víkurskarðið. Ég geri það svo sem ekki oft en það kemur fyrir, hvort sem ég er bara í skemmtibíltúr í Vaglaskóg, að fara til Húsavíkur eða Egilsstaða. Á vetrum getur verið mjög torfært um Víkurskarðið og það hefur m.a.s. komið fyrir að því hefur verið lokað vegna veðurs. Ekki oft en það hefur gerst. Allir vöruflutningar til Húsavíkur og þess hluta Norðurlands-eystra sem er austan Eyjafjarðar fara um Víkurskarðið. Vaðlaheiðargöng væru því til mikilla hagsbóta fyrir þá sem þar búa. Þýðir þetta að ég sé fylgjandi því að Vaðlaheiðargöng séu ofar á forgangslista en breikkun Suðurlandsvegar?
Nei, reyndar ekki. Á Suðurlandsvegi, milli Selfoss og Reykjavíkur, hefur orðið fjöldi banaslysa en þau eru afar sjaldgæf í Víkurskarðinu. Mér er tjáð að breikkun Suðurlandsvegar dragi úr líkum á banaslysum og hallast að því að trúa því. í mínum huga eru mannslíf ofar í forgangsröðinni en nokkrir lokunardagar á Víkurskarðinu. En, þýðir þetta þá að ég telji að það eigi að ráðast í breikkun Suðurlandsvegar strax en fresta skuli Vaðlaheiðargöngum.
Nei, reyndar ekki. Bæði Suðurlandsvegur og Víkurskarðið virka ágætlega í núverandi mynd. Mér finnst einhvern veginn að eins og ástandið í efnahagsmálunum er núna, þar sem þarf að spara hverja krónu, þá sé óverjandi að ráðast í nokkrar nýframkvæmdir í samgöngumálum. Næsta ár, og jafnvel næstu ár, á eingöngu að sinna viðhaldi á samgöngukerfinu, láta nýframkvæmdir eiga sig. Svo þegar hægt verður að fara að leggja vegi og bora göng aftur þá á að klára Sundabraut og breikka Suðurlandsveg áður en Vaðlaheiðargöng verða boruð.
Samgöngumiðstöð í Reykjavík á aldrei að byggja því þar er álíka bruðl á ferðinni og tónlistarhúsið. (Hvers vegna er ekki löngu búið að hætta þeirri framkvæmd og ráða einhverja til að kanna hvernig hægt sé að komast frá þessu á sem ódýrastan máta?) Líka út í hött að byggja samgöngumiðstöð upp á milljarða til að hylma yfir að í raun er verið að byggja nýja innanlandsflugstöð. Slíka mætti eflaust byggja þar sem sú núverandi er fyrir mun lægri upphæð.