Nú hefur það verið fyrsta frétt hjá RúV í allan dag að það sé búið að aflétta lögbanninu og því megi þeir aftur fara að fjalla um innihald leyniskýrslunnar um Kaupþing og útskýra fyrir almenningi það sem þar kemur fram. Þessu hafa þeir sagt mjög ítarlega og skilmerkilega frá með viðtölum við lögfræðing sinn, fréttastjóra og m.a.s. viðtali við ritstjóra Morgunblaðsins. Hins vegar voru ekki neinar fréttir unnar upp úr leyniskýrslunni fyrr en í sjónvarpsfréttunum og mun fyrirferðarminni en aðalfréttin um lögbannið, eiginlega bara fréttin sem var tekin úr loftinu í skyndi þegar lögbannið var sett rétt fyrir sjö s.l. laugardag.
Þetta finnst mér skrýtið. En líklega var þetta plottið hjá Kaupþingi allann tímann, þ.e. að fréttirnar snérust fyrst og fremst um lögbannið en ekki innihald skýrslunnar sem lak. Hefur það ekki líka gengið eftir? Ég veit ekki betur en fréttir annarra miðla um þetta hafi fyrst og fremst snúið um lögbannið. Svo treysta þeir á að almenningur verði orðinn svo þreyttur á allri umfjölluninni þegar loksins verður farið að kafa í upplýsingarnar sjálfar að þær veki lítil sem engin viðbrögð. Ég tel reyndar að þar vanmeti Kaupþingsmenn stórlega reiðina sem enn kraumar í samfélaginu (og fer vaxandi ef eitthvað er).
Svo legg ég til að Hrannar B. Arnarsson og Benedikt Stefánsson segi afsér sem aðstoðarmenn ráðherra.