Akkúrat núna, á meðan ég skrifa þetta, er kjúklingurinn að malla inni í ofni. Þetta er einhverskonar fjúsjon eldamennsa, Hawaii – Indland – Frakkland. Karrýkjúklingur með ananaskurlahrísgrjónum í soufflé. Það verður spennandi að sjá hvernig þetta kemur út. Annars var ég líka með eitthvað svona fjúsjon dæmi í gær. Það var svona Thai-dósasósa og gúllas en svo hafði ég hvítlauksbrauð með. Það var æðislega gott. Gulla er líka að sauma skátamerkin á flíspeysuna hans Dags svo hann geti farið að selja jólapappír með skátunum á mánudaginn.
Upplifði það í dag hvað “Sýstemið†getur verið fáránlegt. Fór niður á sýslumannsskrifstofu til að láta þinglýsa húsaleigusamningnum. Sá þá að þar stóð á miða að maður þyrfti að leggja húsaleigusamning fram í tvíriti, þar af annað á löggiltum skjalapappír. Ég var bara með einn samning (á löggiltum skjalapappír) en ein afgreiðslukonan sagði mér að ég gæti látið ljósrita þetta fyrir mig í bókabúðinni hinum megin við götuna. Leit samt á umsóknina um húsaleigubæturnar. Þar kom hvergi fram að það þyrfti húsaleigusamning í tvíriti. Bara eitt stykki, þinglýstan, takk fyrir. Fór þess vegna yfir götuna og lét ljósrita samninginn fyrir mig og sneri svo til baka til sýslumannsins. Þegar röðin var komin að mér aftur var mér tjáð að afritið þyrfti að vera á löggiltum skjalapappír ekki frumritið. Ég sá því fram á aðra ferð yfir götuna en afgreiðslustúlkan hlýtur að hafa séð eymdina í svipnum á mér því hún bauðst til að ljósrita þetta fyrir mig. Stimplaði síðan allt í bak og fyrir með stimli embættisins, færði þetta inn í einhverja stóra og merkilega bók og þegar ég bjóst svo við að fá húsaleigusamninginn aftur í hendurnar sagði hún mér að ég gæti komið aftur eftir helgi og náð í hann. “Bíddu, varstu ekki að þinglýsa honum?†spurði ég í sakleysi mínu. “Þarf að gera eitthvað meira?†“Nei, sýslumaðurinn þarf bara að kvitta fyrir þetta. Það verða 1.200 krónur.†Þetta er náttúrulega dásamlegt kerfi. Hefði náttúrulega átt að vera löngu búinn að þessu. Þarf víst að skila inn fyrir 16. ef ég á að fá bætur fyrir nóvember.
Ég fékk eins og allir aðrir, býst ég við, kynningarbækling um nýja 5000 kallinn inn um lúguna í dag. Ég verð að viðurkenna að ég átta mig ekki alveg á tilganginum með þessu og nýju öryggisþættirnir vefjast svolítið fyrir mér. Hefði ekki verið betra að láta svona nýjan 5000 kall fylgja með svo maður gæti skoðað þetta betur?