Einhvernvegin finnst mér að í úrsláttarkeppni sé ekki hægt að keppa um annað sæti en það fyrsta. Hver veit, kannski tapaði næstbesta liðið fyrir því besta strax í 16 liða úrslitum?
Ég man að ein besta ræðukeppni sem ég tók þátt í var gegn Mí í 8 liða úrslitum í MORFíS (man ekki hvaða ár það var). Við rétt mörðum þá keppni og líklega hefði Mí allt eins getað unnið (þó ég haldi að við höfum verið betri). í næstu umferð minnir mig að við höfum tapað gegn FG og verið mun verri. Hins vegar held ég að FG hefði tapað bæði gegn okkur og Mí í því stuði sem við vorum í í umferðinni á undan. En í úrsláttarkeppni er ekki spurt um það heldur bara hvor er betri í það og það skiptið. Ég held að FG hafi síðan keppt við MH í úrslitum og unnið og MH þannig fengið annað sætið. En þýðir það að MH hafi verið með næstbesta liðið í keppninni? Það er mér til efs. FG var án vafa best enda náðu þeir að sigra í fjórum keppnum í röð en ég held að það hafi verið útilokað að ákvarða hvaða lið átti að vera í öðru sæti. Við, MH, Mí eða jafnvel eitthvað annað lið sem hafði tapað gegn FG fyrr?
Þess vegna finnst mér keppni um 3. sætið á HM út í hött og jafn fáranlegt að liðið sem tapi úrslitaleiknum lendi í 2. sæti. í úrsláttarkeppni er bara eitt sæti; það fyrsta.