Þ.e. sala í gegnum síma en ekki sala á símum. í dag var hringt í okkur tvisvar frá Orkunni. Einu sinni í mig og einu sinni í konuna mína til að selja okkur Orkulykla. í fyrra skiptið sögðum við: „Nei, þakka þér fyrir.“ í seinna skiptið skelltum við á. Nú veit ég að við erum ekki rauðmerkt í símaskránni (enda flestir hættir að nota hana) en ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei nokkurn tíman keypt nokkuð skapaðan hlut í gegnum símsölu. Einu sinni vann ég meira að segja við símsölu fyrir tryggingafyrirtækið Scandia í u.þ.b. þrjá daga. Fyrir utan hvað þetta er mannskemmandi starf þá var salan ákaflega lítil m.v. hringd símtöl. í raun finnst mér að það ætti að banna símsölu með lögum. Ef mig vantar Orkulykil fer ég bara á heimasíðu Orkunnar og panta einn slíkan, eða jafnvel hringi í þá. Ef mig vantar tryggingar hef ég samband við tryggingafyrirtæki. Er ekki nóg að auglýsa í fjölmiðlum og á netinu? í raun má flokka svona símsölu með netruslpósti (er hann ekki örugglega bannaður)? Ég held að ef fyrirtæki sem ég hef viðskipti við, s.s. Síminn, TM eða Atlantsolía mundi hringja í mig til að reyna að selja mér eitthvað meira en það sem ég nú þegar kaupi af þeim, mundi ég færa viðskipti mín eitthvert annað.