Tölvan er búin að vera biluð það sem af er páskunum og því hefur maður ekkert komist í að blogga eða neitt. Það var víst „Power Packið“ sem fór og Jóa mági tókst að redda öðru fyrir okkur og skella því í. Stórfínt að hafa svona mann í fjölskyldunni sem getur reddað þessum tölvumálum fyrir mann. Kannski ég sýni þakklæti mitt í verki og gefi honum bílinn minn? Ég hef víst ekki efni á að reka hann ef ég ætla að kaupa mér íbúð. Ekki samkvæmt greiðslumatinu a.m.k. Ég fór líka í atvinnuviðtalið sem ég minnist á um daginn og gekk bara nokkuð vel. Fékk hins vegar að vita að við vorum fimm sem sóttum um og ef hinir hafa einhverja reynslu af starfinu er það meiri reynsla en ég hef svo ég er ekkert sérstaklega bjartsýnn. Við Gulla erum búin að vera að taka til og þrífa í allan dag og mér finnst ég bara hafa verið duglegur. Gulla sendi mig samt í bíltúr með strákana þegar ég fór að gera heiðarlega tilraun til að þurrka af. Hún sagði að ég hjálpaði mest svoleiðis. Ég var víst búinn að lofa strákunum að þeir mættu fara í bíó að sjá Scoobie Doo 2 um páskana svo nú eru þeir í bíó og við Gulla bara ein heima. En hafi ég hugsað mér að hafa eitthvað kósí og rómantíska stemmingu svona rétt á meðan get ég gleymt því. Hún æðir hér um með ryksugu og afþurkunarklút og til þess að verða að einhverju gagni ætla ég bara að fara að byrja að elda matinn. Hann verður þá líklega til um það leyti sem strákarnir verða búnir í bíóinu. Jú, það var líka aftur spilakvöld í gærkvöldi og ég vann aftur. Merkilegt hvað ég er alltaf heppinn í spilum og samt svona vel giftur!