107331372026141100

Þá er fyrsti vinnudagur ársins búinn. Bara svona stutt í­ upphafi til að koma sér í­ gang. Samt fannst mér svolí­tið skrýtið að hefja misserið svona á því­ að hafa fyrirlestur og fund frá 8:30 – 12:30 svona í­ staðinn fyrir að gefa okkur tí­ma til að undirbúa kennsluna. Fyrst var fyrirlestur um Uppbyggingarstefnuna. íkaflega áhugavert. Ég ætla að leyfa mér að birta hér hluta af lesefninu sem fylgdi fyrirlestrinum. Hér er ví­sindaleg útskýring á innri áhugahvöt: „Hún hjálpar okkur að skilja það, hvernig manneskjan leitast stöðugt við í­ ákveðnum tilgangi og á mörgum vitundarstigum, að ná markmiðum sí­num og fullnægja þörfum sí­num í­ sí­breytilegu umhverfi.“ Það var nú einmitt það. Um Uppbyggingarstefnuna er einnig sagt: „Hægt er að tala þannig um aðferðina sérstaklega og bera saman við aðrar uppeldisaðferðir og segja að hún sé lí­fsgildismiðuð fremur en reglumiðuð.“ Gott að hafa það á hreinu. Samt er náttúrulega stórkostlegast að lesa þetta: „íherslan færist frá ótta til óttaleysis, frá ytri stjórn til innri stjórnar, frá ytri hvatningu til innri hvatningar, frá umbun og refsingu til eigin lausnar á vanda, frá talhlýðni til sjálfsaga, frá reglum til lí­fsgilda, frá skömm til hugprýði, frá útskúfun til endurkomu og sátta, frá vonleysi og uppgjöf til sjálfstrausts og bjartsýni.“ Vá! Allt þetta er einungis að finna á fyrstu blaðsí­ðu þessa fjögurra sí­ðna dreifildis sem heldur áfram á svipuðum nótum. Er svo nema von að maður segi að kennarastarfið sé varla fyrir hugsandi fólk lengur? Ég skal viðurkenna að eftir fyrstu sí­ðuna og fyrsta hálftí­mann af Power Point kynningunni fór hugurinn að hvarfla frá þessu heillandi viðfangsefni og í­ staðinn skrifaði ég þetta ljóð sem lýsir hugarástandi mí­nu á þessum tí­ma lí­klega betur en löng útskýring:

„Hví­tidauði“

Dalsins er umgjörðin dimm og hörð
með drifhví­tri hættunni virkri.
Helköld er jörðin með hví­tan svörð.
Himininn fullur af myrkri.

Fólkið sem hrærist þar fátt og kalt,
fennt inni veturna auma,
þó þrautir og mæða sé þeirra allt,
það á sér vonir og drauma.

En snjóteppið veltur úr vinda stól.
Veturinn, hann er svo dapur.
Svo þunglega hellist það heims um ból.
Hví­tur er dauðinn og napur.

Að þessum stórkostlega fyrirlestri loknum var svo haldið í­ þemavinnu um virðingu og hvernig hægt væri að innræta nemendum hana. Mikil hugstormun og skapandi pælingar um eðli og birtingarmyndir virðingarinnar. Endaði svo með klukkutí­ma hópavinnu þar sem sett var saman aðgerðaráætlun með mælanlegum og sýnilegum viðmiðum, markmiðum og verkefnalistum. Ég hélt alveg haus allan tí­mann og lét sem ekkert væri þegar fólk var að kynna hugmyndir um veggspjaldavinnu, gátlista, samskiptabækur, leiðarbækur og portofolio vinnu. Ég lagði meira að segja fram í­ umræðuna að aðalatriðið til að vinna með virðingu með nemendum væri að umgangast þá eins og manneskjur og reyna að kynnast þeim persónulega í­ stað þess að lí­ta á þá sem viðfangsefni og reyna að beita einhverjum trixum til að fá þá til að sýna ákveðna hegðun. Flestir tóku undir þetta en lí­klega er frekar erfitt að vinna aðgerðaáætlun út frá þessari hugsun. Mér tókst þó að sýna þolinmæði og kurteisi í­ allan dag og tel mig því­ hafa staðið vel við ársfjórðungsheitin mí­n.

Ókei, bæ….