Hvílíkur dagur! Ég er búinn að vera á fullu frá því klukkan 7 í morgun. Þetta byrjaði svo sem nógu vanalega, fara á fætur, borða morgunmat, koma strákunum í skólann o.s.frv. Það var líka heldur rólegt í vinnunni. Ég var að kenna tvo fyrstu tímana og svo með frímínútnagæslu, síðan kom tveggja tíma eyða hjá mér. Þegar ég var búinn að fara yfir nokkrar ritgerðir ákvað ég að skjótast heim og ná í ljóðakver sem ég á í ljósriti til að nota í ljóðakennsluna núna í vor, en hvernig sem ég leitaði fann ég það hvergi. Svo á endanum hljóp ég í vinnuna og kom móður og másandi rétt í tæka tíð til að kenna seinni tvo tímana mína. Miðvikudagar eru eiginlega yfirleitt rólegustu dagarnir hjá mér, ekki nema fjórar kennslustundir.
Eftir vinnu ákvað ég hins vegar að skreppa niður á fasteignasölu og leggja fram tilboð í íbúðina sem við erum búin að vera að skoða. Þá kom í ljós að veðbönd voru misvísandi skráð eftir því í hvaða gagnabanka var leitað og þegar loks var hægt að fá á hreint hvaða skuldir hvíldu í raun á eigninni þá fundust hvergi lánanúmerin. Svo tilboðsgerð verður að bíða fram til föstudags en þá verður fasteignasalan búin að fá lánanúmerin.
íkvað í framhaldi af þessu og af því að klukkan var bara hálf tvö að rölta mér yfir í sparisjóðinn og athuga hvort greiðslumatið væri tilbúið. Þar biðu mín þær skemmtilegu fréttir að ákveðnar staðfestingar sem áttu að koma í tölvupósti eða faxi voru ekki komnar. Stefán sem sér um greiðslumatið þarna í sparisjóðnum er öðlingur og snillingur og hann lét mig fá greiðslumat en sagði að ég þyrfti jafnframt að útvega þessi skjöl sem vantaði upp á og nokkrar undirskriftir. Hann sagði líka að það væri eiginlega betra fyrir okkur að fá lágt greiðslumat sem sýndi fram á meiri tekjuafgang ef við ætluðum ekki að kaupa dýra eign. úr varð að ég fékk hjá honum 9 milljón króna greiðslumat sem ætti að nægja okkur og þurfti svo að leggja í leiðangur til að afla nauðsynlegra staðfestinga og undirskrifta sem við höfðum ekki komið með þegar við lögðum inn umsóknina.
Að þessu var ég til svona u.þ.b. hálf fjögur. Sem væri svo sem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að ég átti að vera mættur á fund á Húsavík klukkan fimm. Rauk því heim og náði í BKNE töskuna (Bandalag kennara á norðurlandi eystra), fór þaðan í bakarí að kaupa bakkelsi á fundinn og svo í vinnuna til Gullu. Hún skutlaði mér út á Leiru þar sem afgangurinn af stjórninni beið mín og á slaginu fjögur var lagt af stað til Húsavíkur. Á leiðinni var hringt í mig hvorki fleiri né færri skipti en þrjú. Fyrstu tvö voru frá sparisjóðnum, Stefán að láta mig vita að ég gæti náð í greiðslumatið klukkan hálf fimm (sem ég verð að ná í á föstudagsmorguninn) og í seinna skiptið til að láta mig vita að það vantaði enn einn pappírinn en það er svo kallað íbúðavottorð sem maður fær víst hjá sýslumanni og á að staðfesta að við séum að fara að kaupa okkar fyrstu íbúð. Þarf að ná í það áður en ég fer og næ í greiðslumatið.
Á fundinum á Húsavík var svo skipulagt þrælflott tveggja daga kennaraþing næsta haust, 1. – 2. október með viðamikilli og flotti dagskrá í samvinnu við skólastjórafélagið. íhugaverð ráðstefna og aðalfundir félaganna fyrri daginn og fagfundir, námskeið og kynningar seinni daginn. Þetta verður áreiðanlega mjög flott. Síðan var rokið aftur til Akureyrar og komið hingað rétt fyrir átta.
Þá loksins gat ég sest niður, lesið Fréttablaðið í ró og næði, nartað í samloku og melónu og farið svo á netið. Nú verður horft á sjónvarpið fram á miðnætti og svo farið að sofa. Hins vegar þarf ég líklega að vakna snemma í fyrramálið til að skutla skátanum í skrúðgönguna. Ætli maður fylgist svo ekki með dagskránni fyrst maður verður vaknaður og kominn á staðinn hvort sem er.