Var að koma úr göngutúr um miðbæinn. Verslunarmannahelgarstemmingin að byrja. Hlölli og Dómínós búnir að koma fyrir söluvögnum í göngugötunni (sem verður vonandi lokað fyrir bílaumferð um helgina) og sígaunar þessa lands að setja upp sölutjöldin sín svo hægt verði að blóðmjólka firrt barnafólk og sauðdrukkna unglinga um sem flestar krónur. Lýðurinn streymir í bæinn. útjaskaðir sukkarar stíga út úr rútunum með engan farangur nema örorkubæturnar og stefna beint í Ríkið, innan um eru tjaldaðir unglingar og uppábúin börn að bíða eftir að afi og amma komi og sæki þau. Hinum megin við planið geysast tjaldvagnaðir milljónajeppar sem hafa aldrei yfirgefið malbikið og lítil íbúðarhús á hjólum eftir Drottningarbrautinni á tjaldstæðin utan við bæinn. Þangað verða reglulegar strætóferðir alla helgina. Einstaka japanskur fjölskyldubíll sleikir götuna þungaður pökkum og pinklum þeirra sem hafa náð að kría út gistingu hjá ættingjum. Hátíðin verður sett klukkan 20:30 í kvöld á hellulögðu Ráðhústorginu. Þar er ekki grasblett að sjá í mörghundruð metra radíus svo enginn geti tjaldað þar. Þar verð ég með strákana mína. Það er töframaður á dagskránni!