109204863571454792

Myljandi Mánadagsveður á Reyrinni, Gulla í­ vinnunni og drengirnir úti á firði að sigla. Kassarnir hurfu úr innri stofunni meðan karlpeningurinn var í­ útilegunni en núna er sófinn fullur af myndum. Augsýnilega minna veggpláss hér en í­ þeim í­búðum sem við höfum verið í­. Ég er á leiðinni út í­ búð að kaupa í­ matinn. Aldrei að vita nema ég skreppi á bókasafnið eða kannski í­ sund. Lí­fið er dásamlegt tra-la-la. Eða var það þangað til ég kí­kti í­ heimabankann.