Tvö mánadagsblogg! Rosaleg framleiðni er þetta. Ekki það að ég hafi neitt að segja. Bara sit við tölvuna og hef ekkert betra að gera. Og þó! Ég ætla á kertafleytinguna núna á eftir. Þar sem ég bý í innbænum þá er þetta nú eiginlega bara hérna við túnfótinn hjá mér. Hef líka tekið eftir því að kertafleytingin er klukkan 22:30 en ekki 20:30. Ég er samt ekki meðlimur í SGI á Íslandi en hef samt gert mér grein fyrir því að dagblöðin gera stundum mistök og menn sem heita Geir Guðjóns gera stundum að gamni sínu.
Mér er illa við hvað menn eru mikið að spyrða John Kerry við Samfylkinguna. í hvert sinn sem þarf að tala um forsetakosningarnar þarna úti er náð í ung-sjálfstæðismann til að tala fyrir Bush og ung-samfylkingarmann til að mæra Kerry. Hægri sinnaðan kaþólikka sem er á móti fóstureyðingum og hjónabandi samkynhneigðra. Ég finn enga þörf hjá mér til að taka upp hanskann fyrir þennan mann þó hann sé líklega 100x skárri en júníorinn. Skil heldur ekki af hverju Heimdellingar og íhaldsmenn eru svona spenntir fyrir Bush. Hefði haldið að Kerry og Demókratar stæðu mun nær Sjálfstæðisflokknum (a.m.k. fyrir utan Davíð, Hannes, Björn og Jón Steinar). Við verðum bara að horfast í augu við það að það er ekki það sama að vera krati í USA og Evrópu. Sjallinn er bara bandarískur krati!
En núna ætla ég að fara að horfa á 70 mínútur þangað til kertafleytingin byrjar kl. 22:30 en ekki klukkan 20:30. OK? Náðu þessu allir? Kertafleytingin er kl. 22:30 EKKI klukkan 20:30. Fínt!