Á morgun nenni ég kannski að blogga um 8 síðna auglýsingu Sparisjóðanna í Fréttablaðinu í dag sem siglir undir því falska flaggi að þykjast vera aukablaðið Námsmannablaðið (með sama haus og Fréttablaðið). Efst á forsíðu stendur þó með 9 punkta letri: AUGLíSING. Ekki viss um að allir hafi tekið eftir því. í blaðinu eru svo Sparisjóðirnir að reyna að hneppa námsmenn í skuldafjötra með ýmsum leiðum. Birta meira að segja auglýsingar frá glæpafélögum sínum í auglýsingunni sinni! Ég ætla að vona að enginn námsmaður hafi fallið í þá gryfju að telja þetta alvörublað sem hlutlaust lofsyngi Sparisjóðina og skuldafenið þeirra svona. Einu áhrifin sem þetta hafði á mig var að magna upp andúð mína á bankakerfinu íslenska sem var þó ærin fyrir!