Var að hlusta á Steingrím J. valta yfir Birgi írmannsson í útvarpinu. Það var gaman. Enda ekki erfitt að valta yfir menn sem hafa ekkert til síns máls. „Er þá niðurstaðan að vera bara á móti öllu?“ Þannig hljómuðu nú rökin hans Birgis. Ég hef nú sjálfur ekkert á móti því að einkavæða Símann. En það verður þá að gera það rétt og fjarskiptakerfið (upplýsingaveituna) sjálft má ekki selja að mínu mati. Þá verður farið næst út í að selja vatns- og rafmagnsveitur þar sem Sjálfstæðismenn komast til valda og þar næst vegakerfið og löggæsluna. Menntakerfið og heilbrigðisþjónustuna er nú þegar byrjað að bjóða út gegn vilja meirihluta landsmanna. Þetta eru asnar Guðjón, segi ég nú bara.