109442047507450969

Hver man eftir jafnréttisfulltrúanum á Akureyri sem höfðaði mál á hendur bænum þegar hún komst að því­ að hún hafði lægri laun en karlarnir sem voru í­ öðrum fulltrúastöðum hjá bænum? Einhvern veginn varð mér hugsað til þessa máls þegar það var verið að tala um jafnréttisstefnu í­ skólanum um daginn. Jafnréttisstefna Akureyringa hefur nefnilega verið fólgin í­ því­ hingað til að borga konum lægri laun en körlum og útiloka þær frá stjórnunarstöðum. Held t.d. að kona hafi ekki orðið skólastjóri á Akureyri fyrr en um 1995. Núna eru þær reyndar orðnar fleiri. Kannski að jafnréttisáætlunin endurspeglist svolí­tið í­ árásum Kristjáns Þórs Júlí­ussonar bæjarstjóra á kjarasamningaumræður grunnskólakennara. Enda sú lygi öll lí­klega til þess eins að hleypa upp samningum og reyna að halda kennurum (hefðbundið kvennastarf) á lágum launum. Falleg jafnréttisstefna er nefnilega lí­tils virði ef ekki er farið eftir henni. Að mí­nu mati er þessi stefna ekki virði pappí­rsins sem hún er skrifuð á (eða bætana sem hún tekur upp á netinu) frekar en önnur svona stefnumótun sem lí­tur vel út á pappí­r en er aldrei farið eftir, t.d. skólamálastefna Akureyrarbæjar sem mikið var unnið í­ sí­ðasta vetur en varð svo ekki annað en froða á pappí­r sem hefur ekkert merkingarbært innihald!
Ég blæs að minnsta kosti á allar hugmyndir og sjálfshól um skólabæinn Akureyri meðan það þarf að borga skólagjöld í­ leikskóla, grunnskólarnir eru fjársveltir, bæjarstjórinn hefur það eitt að markmiði að egna kennara upp á móti sér, skólastefnan er bull og aðrir skólar hér eru reknir af rí­kinu.
Hvernig væri að taka í­ rassgatið á sjálfum sér og reyna að standa við stóru orðin?