109667148461066228

Gaman að sjá hvað bréfið mitt til Dómsmálaráðuneytisins hefur vakið mikil viðbrögð. Að ví­su ekki frá ráðuneytinu en þaðan hefur mér ekki borist neitt svar við því­. Það væri áhugavert að fá að vita hvort einhverjir aðrir en ég hafi sent þeim bréf. Um leið er sorglegt hvað þessi komment sem ég fékk við bréfinu bera sumum netfarendum slæmt vitni. Mér finnst alltaf sorglegt þegar menn eru með gí­furyrði og dónaskap nafnlaust. Gaman lí­ka hversu margir hafa haldið í­ alvörunni að ég hefði einhverjar áhyggjur af því­ að lenda fyrir Hæstarétti og að þetta bréf mitt hefði einhverja lögformlega merkingu. Mér fannst þetta bara áhrifarí­k leið til að mótmæla og ef fleiri hafa farið að mí­nu ráði þá hefur það eflaust verið það. Því­ væri gaman að fá að vita hvað þeir hafa fengið mörg bréf! Bara mitt? Tvö til þrjú? Hvað ætli gæti talist góður árangur í­ þessu samhengi?

íðan var ég endurkjörinn í­ stjórn BKNE og enginn gerði athugasemdir við ársreikninginn. (Enda var hann fullkominn) 😉
Nú verður næsta starfsár frábært! Fréttabréf, óvissuferðir, fundarferðir, fræðslufundir og læti. Ef það verður nægur kraftur í­ stjórninni.