Ég held að ég sé félagi í eftirtöldum félögum: BKNE sem er stéttarfélagið mitt og aðili að Félagi grunnskólakennara sem er aðili að Kí, Samfylkingunni (stofnfélagi), Íslenska Halifaxklúbbnum (af því að mér fannst heimasíðan sniðug, ég held ekki með þeim), Dýonísos og Frevangsleikhúsinu (þar er maður samt bara með, ég held það sé engin félagaskrá). Svo man ég ekki til að Te- og skeggvinafélagið Grettir og Glámur eða Heimspekifélagið Marat hafi nokkurn tíman verið lögð niður svo líklega er ég enn félagi í þeim.
Annars ætla ég að fjalla um fimm Eurovisionlög til viðbótar í dag en þau eru:
Lettland: Rólegt og fallegt lag sem á alveg skilið að ná langt en gerir það líklega ekki. Maður hefur heyrt hundrað svona lagasmíðar. Minnir samt svolítið á Rollo og King hérna um árið. Lakara en íslenska lagið.
ísrael: Alveg hreint ömurlegt. Það ætti að sjónvarpa þessu um gervallan arabaheiminn til að sýna ísrael í neikvæðu ljósi. Samt einhverjir Eurovisiontaktar þarna. Mikið verra en íslenska lagið.
írland: En koma írarnir á óvart. Núna fyrir það hvað þeir eru lélegir. Lagið er samt voðalega lítið nema stutt viðlag sem er grípandi þrátt fyrir að vera frekar ómerkilegt. Að því leiti minnir lagið svolítið á Love shine a light nema hvað það er mikið lélegra. Mun lélegra en íslenska lagið.
Ungverjaland: Þegar ég var lítill og heyrði fyrst minnst á Ungverjaland þá hélt ég að það væri einhver skemmtigarður í Evrópu. Mér fannst nafnið hljóma þannig. (Kannski haldi enskumælandi þjóðir að þetta sé Hungurland?) Lagið er hins vegar mjög gott. Skemmtileg evrópsk stemming í því með tyrkneskum áhrifum. Þetta á örugglega eftir að ná langt. Svipað og íslenska lagið.
Frakkland: Frakkar hafa nú ekki riðið feitum hesti frá þessari keppni undanfarin ár og gera það líklega ekki heldur í ár. Lagið er samt mjög gott en það virðist bara ekki nægja Frökkunum. Það er líka full vesturevrópskt og á líklega ekki eftir að falla öllum austurevrópsku þjóðunum í geð. Létt og skemmtilegt Eurovision í gangi hérna samt. Þessu lagi á eftir að ganga verr en því íslenska þó mér finnist það svona álíka gott.
Læt þetta nægja í bili. Ef þið munið eftir að vera í einhverju félagi með mér sem ég gleymdi að telja upp þá megið þið alveg láta mig vita.