112498573679559593

í mí­nu starfi þarf ég mikið að vinna með alls kyns tölvuvædd tæki og tól, s.s. tölvur, sí­mkerfi, ljósritunarvél, mynd- og skjávarpa, plöstunarvél, gormabinditæki og kaffivél (eða könnu). Ég er alveg sæmilega vel að mér í­ öllum þessum tækjum og það sem ég veit ekki kemst ég að með því­ að fikta (lærði t.d. þannig á Publisher). Hér á vinnustaðnum er lí­ka haldinn fjöldi námskeiða til að kenna fólki á þessi tæki og forrit (reyndar ekki kaffikönnuna) og alltaf er einhver tilbúinn til að aðstoða fólk og leiðbeina. í þessu ljósi kemur mér á óvart hve margir samstarfsmenn (konur) mí­nir eru tækjafælnir og virðast eiga erfitt með að átta sig á hvernig þetta virkar. Ég sé ekki alveg hvernig ég gæti sinnt starfi mí­nu ef ég kynni ekki að fara með þessi tæki.