Ég hef tekið eftir því að ýmsir kvenbloggarar eru með tengla á myndir af fáklæddum karlmönnum á bloggum sínum eða jafnvel myndirnar sjálfar, sumir einstaka sinnum en aðrir reglulega. Ég hef ekki tekið eftir samskonar tenglum eða myndum af fallegum konum hjá karlbloggurum af einhverjum ástæðum. Þess vegna er ég að hugsa um að brjóta þessa ósýnilegu múra og lít á það sem framlag af minni hálfu til jafnréttisbaráttunnar. Svo er nefnilega mál með vexti að mér hefur lengi fundist þessi kona alveg ákaflega myndarleg snót.