Sumum finnast borgaralegar fermingar asnalegar. Það finnst mér allt í lagi þó ég sé ekki sömu skoðunar. Að sjálfssögðu má fólki finnast það sem því sýnist. Sjálfum finnast mér fermingar þjóðkirkjunnar asnalegar og margt fleira sem ég gæti notað sterkari lýsingarorð um. Ég vil líka fá að hafa þá skoðun í friði.
Undarlegra finnst mér þó þegar fólk er að reyna að gera hátíðir eins og jólin að einhverju sér kristnu. Enda varla hægt að hugsa sér heiðnari hefð en jólahald. Kristin jól? Hvað kemur næst? Kristin Þorrablót?