Ég hef verið kitlaður svo hér eru listarnir mínir:
7 konur sem mér hafa fundist fallegar (fyrir utan maka):
1. Sandra Kim
2. Sandra Bullock
3. Angelina Jolie
4. Lena Katina
5. Drew Barrymore
6. Melanie Griffith (Reyndar er sætleiki hennar bundinn við myndina Cherry 2000)
7. Sabnem Paker
7 hlutir sem ég get:
1. Kennt
2. Skipulagt
3. Skrifað hratt á lyklaborð
4. Komið fyrir mig orði
5. Eldað góðan mat
6. Leikið
7. Haldið takti
7 hlutir sem ég get ekki:
1. Sungið
2. Smíðað
3. Horft á væmnar kvikmyndir
4. Haldið höndunum stöðugum
5. Grátið
6. Klifið fjöll
7. Teiknað
7 atriði sem ég segi oft:
1. Whatever
2. OMG
3. Helvítis, djöfulsins, andskotans
4. Fokkings sjitt
5. Jeg gider ikke
6. Þú ert ágæt(ur)
7. Þú ert ekki sem verst(ur) sjálf(ur)
7 gallar í fari mínu sem ég á erfitt með að forðast:
1. Besserwiss
2. Hroki/Sjálfstraust
3. Leti
4. Að fresta hlutum
5. Fljótfærni
6. Að taka hlutum of alvarlega
7. Að taka hlutum ekki nógu alvarlega
7 hljómsveitir sem ég hlusta á og einkenna mig sem manneskju:
1. Duran Duran
2. Eurovision (Ég veit að það er ekki hljómsveit)
3. Annars
4. hlusta
5. ég
6. ekkert á
7. tónlist
7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
1. Koma til allra heimsálfa (Nema Suðurskautslandsins)
2. Skrifa bók
3. Taka þátt í afhelgun samfélagsins
4. Láta til mín taka
5. Segja skoðun mína og hvetja aðra til að vera gagnrýnir
6. Verða gamall
7. Eiga áhyggjulaust ævikvöld
Þar sem ég er lítið fyrir að halda svona keðjum gangandi ætla ég að kitla eftirfarandi: Björn Bjarnason, Egil Helgason, forsetann og biskupinn.