Ég er veikur og er búinn að vera það síðan á föstudaginn. Það byrjaði svo sem ekki alvarlega, smá verkur í hægra auga sem svo fór að leka úr daginn eftir. Svona var ég á sýningum á Kardimommubænum á laugar- og sunnudag. Sýnu verri á sunnudaginn þó. Þegar ég vaknaði á mánadaginn var augað hins vegar samanlímt og ógeðslegt og hálssærindi farin að gera vart við sig. Ég pantaði tíma hjá lækni sem á fimm mínútum úrskurðaði mig með slímhimnubólgu, gaf mér resept á einhverja augndropa en sagði að það væri ekkert að mér í hálsinum. Nú er ég búinn að nota þessa augndropa í tvo daga og finn engan mun á mér. Það lekur og lekur úr auganu sem er rautt og bólgið. Hálssærindin hafa að vísu rénað svo líklega var það rétt hjá læknis**** að ekkert væri að mér þar.
Lítið að frétta úr pólitíkinni. Maður skyldi ætla að menn hefðu varla neitt að ræða á Alþingi. Gengisfall krónunnar eykur aflaverðmæti um milljónir á heimstíminu og samt neita menn því að til sé eitthvað sem heitir Kárahnjúkavandi á landinu bláa.
Læt þetta nægja í bili.