Eurovision 2

Það var gaman af tí­matökunum í­ formúlunni í­ hádeginu. Reyndar ollu McLaren menn mér vonbrigðum. Ég hafði búist við þeim sterkari eftir að þeir fengu nýju vélina. Eins og staðan er núna lí­tur út fyrir að þetta verði slagur á milli Alonso og Schumacher og þá held ég nú meira með Alonso.
Núna ætla ég hins vegar að vinda mér í­ að fjalla um Eurovision lögin frá sí­ðustu kynningu svona fyrst þriðji þátturinn er í­ kvöld. Ég tek þá upp þráðinn þar sem ég hætti sí­ðast:

Kýpur
Þeir senda ákaflega brjóstgóða söngkonu sem hefur ví­st helst unnið sér það til frægðar að vera bakraddasöngkona hjá einhverju frægum störnum í­ Amerí­kunni. Lagið gæti svo sem verið í­ hvaða Disney-mynd sem er en er samt voða ósérstakt. Hún gæti samt fengið einhver stig út á brjóstin. Ég gef 2 stig.

Mónakó
Það er ung og sæt stelpa sem syngur fyrir Mónakó þetta árið og þeim í­ kynningarbæklingnum fannst myndbandið hálf klámfengið. Mér fannst það samt hátí­ð miðað við myndbandið hjá Hví­ta-Rússlandi. Þetta er hins vegar notalegt lag með Hawaii-stemmingu og ég hef gaman að þessu. Þetta er a.m.k ögn skemmtilegra en Kýpur og því­ gef ég 3 stig.

Makedóní­a
Ég hlýt að vera kominn með Makedóní­u-heilkennið því­ mér finnst þetta með betri lögum í­ keppninni í­ ár. Viðlagið er ákaflega grí­pandi og þetta er skemmtileg blanda af þjóðlegu og aljóðlegu. Það vantar eitthvað upp á til að þetta sé frábært en mjög gott engu að sí­ður. Ég gef 4 stig.

Pólland
Það er ekki hægt að segja annað en að þetta lag sé mjög sérstakt. Rauðhærði gæinn fer hins vegar í­ taugarnar á mér og mér finnst hann syngja skelfilega. Rapparinn er lí­ka mjög slæmur. Söngkonurnar eru hins vegar gullfallegar og syngja vel. Þar að auki er ágætis mmelódí­a í­ þessu meðan rauðhærða frí­kið þegir. Gott lag til að hlusta á með lokuð augu í­ keppninni. Ég gef 3 stig.

Rússland
Rússarnir þykja góðir í­ ár en ég verð að viðurkenna að ég sé það ekki þó að ballerí­nurnar á sviðinu séu flottar. Lagið er hins vegar dæmigerð meðalmennska. ígætis melódí­a samt og strákurinn vissulega sætur. Ég hallast að því­ að gefa þessu 3 stig þó mér finnist Mónakó betra. Þetta á skilið eitthvað aðeins meira en 2 stig. Já, ég gef 3.

Tyrkland
Þetta er lag sem menn annað hvort þola ekki eða elska. Svipað og með Silví­u Nótt, enda nákvæmlega sami húmor á stelpunni. Þess vegna ætti lagið að fá mikið af stigum frá Íslandi en það lí­ður ákaflega fyrir það að lagasmí­ðin sjálf er frekar léleg. sem sagt, ég fí­la húmorinn í­ þessu vel en finnst lagið sjálft slæmt. í raun hef ég orðið fyrir talsverðum vonbrigðum með Tyrki sí­ðustu tvö ár því­ þar á undan áttu þeir frábær lög í­ mjög langan tí­ma. Ég fer t.d. ekki ofan af því­ að Dinle með Sabnem Paker er eitt flottasta Eurovision-lag ever. Ég gef þessu hins vegar 2 stig.

úkraí­na
Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja um þetta. Lagið er grí­pandi og skemmtilegt, fí­nt lag til að dilla sér við á dansgólfi einhversstaðar. Umgjörðin er lí­ka fí­n og þetta er allt mjög gott. Hins vegar er ekki vottur af frumleika í­ þessu og þess vegna ætlaði ég að dæma þetta mjög niður en svo fattaði ég náttúrulega að meginhluti Eurovison-laga fellur undir þessa skilgreiningu og þess vegna ætla ég að vera góður og gefa þessu 3 stig.

Finnland
Finnarnir fara sömu leið og Norðmenn í­ fyrra en ganga enn lengra. Það er áhugavert að í­huga hvernig flytjendunum á eftir að lí­ða í­ þessum búningum á sviðinu í­ Aþenu. Þeir hljóta að svitna alveg svakalega. Það er samt gaman af svona atriðum þó svo að þessi tónlist höfði ekki til mí­n. Lagið er samt mjög grí­pandi og ef ekki væri fyrir það að þungarokk er ekki minn tebolli þá gæfi ég þessu fullt hús stiga. Ég gef 4 stig.

Þá læt ég staðar numið að sinni en fjalla um afganginn af lögunum í­ undankeppninni sí­ðar.