í gær laust eftir tvö ýtti ég á send takkann í tölvupóstinum mínum og sendi síðasta verkefnið í MPA-náminu fyrir jól. Þetta hefur gengið ágætlega hjá mér og þær einkunnir sem ég hef fengið hafa verið á bilinu 8 – 9,5. Ég er búinn að fá allar einkunnirnar mínar í Almannatengslunum (9, 9,5 og 9) og mér reiknast til að ég sé með 9,2 í lokaeinkunn þar. Ég er búinn að fá tvær einkunnir (af fjórum) í Opinberri stjórnsýslu (9,2 og 8,5-9), reyndar átta ég mig ekki á því hvað átt er við með 8,5-9. Ég meina hvort er það? Svo er ég búinn að fá tvær einkunnir af fjórum í Mannauðsstjórnuninni (8 og 9).
í gær átti ég að skila þremur verkefnum, tveimur 20% verkefnum í Mannauðsstjórnun (annað kláraði ég á laugardaginn og hitt á óðinsdag) og 40% verkefni í Opinberri stjórnsýslu. Ég las undir það um helgina, gerði efnisgrind á mánadag og las aðeins meiraá týsdag, kláraði svo lesturinn og skrifaði upp heimildalista og einhverjar tilvitnanir á óðinsdag. Á þórsdagskvöld var því sest niður og hafist handa við að skrifa. Það gekk erfiðlega framan af og ég átti erfitt með að koma frá mér skipulegum texta um þær breytingar sem hafa orðið á rekstrarformi opinberrar stjórnunar á seinustu áratugum. Ekki skánaði það þegar ég fór að skrifa um umboðskeðjuna en kaflanir um muninn á nýskipan í ríkisreksri og netstjórnun og um áhrif mismunandi rekstrarforma á markmið gengu vel. Klukkan var því orðin 7 um morguninn þegar ég lagði lokahönd á verkefnið með því að láta forritið búa til efnisyfirlit fyrir mig.
Þá fór ég í vinnuna, sat yfir tveimur prófum og útbjó próf fyrir mánadaginn, las verkefnið yfir aftur, leiðrétti nokkrar villur og ýtti svo á send. Þá kom yfir mig einhver yndisleg tilfinning. Eftir margra vikna álag var þessu lokið og það hafði meira að segja gengið nokkuð vel. Ég ákvað því að taka ekki eitt einasta próf eða verkefni með mér heim yfir helgina til að fara yfir heldur fara í almennilegt helgarfrí.
Eftir að ég var búinn að kaupa inn, redda jólasveinabúningi fyrir Dag og koma bílnum til Gullu, var haldið til Ólafsfjarðar á árlegan jólakortafund BKNE. Þá skrifum við jólakort til allra trúnaðarmanna og þeirra sem hafa verið að vinna fyrir félagið eða með okkur á árinu sem er að líða. Bjarkey, sem rekur pizzastað á Ólafsfirði, bauð upp á pizzur sem voru frábærar, með miklu áleggi og miklum osti. Ég kom því heim um það bil klukkan hálf níu og viti menn, konur og tröll, það var einhver óeirð í mér og ég gat ekki farið beint að sofa. Eftir klukkutíma var ég búinn að jafna mig á spennufallinu og deginum og fór í rúmið.
Konan mín segir mér að ég hafi hrotið hátt og mikið seinustu nótt.