Ég get ekki sagt að ég sé mikill íþróttaáhugamaður þrátt fyrir að fylgjast með formúlunni. Ég verð hins vegar var við það að nú er að hefjast HM í handbolta og í útvarpinu um daginn var rætt við einhvert fólk á götunni um hvaða sæti það héldi að Ísland myndi ná. Spár voru allt frá því að Ísland lenti í 3. – 4. sæti og fóru ekki neðar en það. í lok fréttarinnar sagði fréttamaður svo frá því að besti árangur Íslands á HM hingað til hafi verið 5. sætið í Japan.
Þar sannast enn sem fyrr hvað Íslendingar eru bjartsýn þjóð. Því miður þá endar svona bjartsýni sem er frekar óraunsæir draumórar þó yfirleitt frekar í fúllyndi og leiðindum en sú bjartsýni sem þó hefur litlu tá annars fótar í raunveruleikanum. Þess vegna fannst mér skemmtilegt að lesa í Fréttablaðinu um daginn þar sem verið var að ræða sömu spurningu við þjóðþekkta Íslendinga sem samt tengjast handbolta eða íþróttum á engan hátt að flestir spáðu Íslandi 12. – 18. sæti og einn taldi að Eiður Smári yrði maður mótsins.
ífram Ísland! (16)