Þrátt fyrir að mér hafi gengið ágætlega í náminu fyrir jól (enn er þó ekki komin einkunn úr mannauðsstjórnuninni) eru ákveðin atriði sem mér finnst að ég þurfi að taka mig á í á vorönninni (það er mjög flott að skrifa á í á og flokkast væntanlega sem ao., ao. og fs.).
- Að geyma ekki að horfa á alla fyrirlestra vikunnar fram á helgi heldur reyna að horfa á þá samdægurs eða helst ekki seinna en degi eftir að þeir koma á netið.
- Að lesa a.m.k. klukkutíma til tvo á hverju kvöldi í stað þess að liggja yfir lesefni klukkustundum saman þegar verið er að vinna verkefni.
- Að hefjast handa við að skipuleggja verkefni skriflega um leið og þau eru sett fyrir í stað þess að hugsa þau fram og til baka dögum saman án þess að setja nokkuð niður á blað.
Mér sýnist að með því að framfylgja þessum markmiðum ætti námið að geta gengið betur fyrir sig en fyrir jól og ég ætti ekki að lenda í eins miklum törnum. Hitt er svo spurning hvort ég ætti að fara að senda kennurum í mannauðsstjórnun tölvupóst og spyrjast fyrir um einkunnir eða hvort ég eigi að bíða eitthvað lengur eftir að þeir skili þessu af eigin hvötum? (13)